|
Fegrunarráð
Til að fá fagrar varir skaltu bara hafa eitthvað gott að segja
Til að hafa falleg augu skaltu svipast um eftir því fallega í fólki
Til að hafa fallegar línur skaltu gefa með þér af matnum
Við höfum tvær hendur. Eina til að hjálpa okkur sjálfum og eina til að rétta hjálparhönd.
|
08.05.2011 19:14:54 / jóhanna elín
† Erla Helgadóttir †
Fædd 17. júní 1948 - Dáin 27.apríl 2011
Ég
óttaðist að Anna myndi koma á jarðaförina. Ég var kvíðin mikið. Ég óttaðist að
gista í Kleppsvegi hjá Afa degi fyrir jarðaför, ef hún myndi birtast þar. Allur
þessi ótti og kvíði var orkufrekur og óþarfur þegar á enda var komið.
Spennufall var mikið næsta dag. Þegar komið var að jarðaför, fengum við
Erlingur far með Afa, Bjargey og Jökli í kirkjuna. Mér leið vel í kirkjunni,
andrúmsloftið var gott, kirkjan falleg. Það var skrítið að hugsa til þess að eitthvað
myndi eyðileggja þetta góða og hlýja andrúmsloft sem ríkti þar inni. Ótti var
þó til staðar en varð minni þegar ég steig inn í kirkjuna. Þarna kynntist ég
fólkinu mínu, mig létti mjög og leið vel. Þarna var fólkið mitt komið saman,
fólk sem ég hafði aldrei kynnst, loksins fékk að sjá það og sjá í raun hverja
manna ég er. Ég var þakklátt fyrir það. Athöfnin var falleg. Mér leið vel. Ég
brosti, því ég trúi að amma væri þarna á móti okkur að gefa í skyn að allt sé í
lagi. Að henni líði vel þar sem hún er í dag, mér fannst ég verða að
samgleðjast og brosti með vörunum. Ég sat á fremsta bekk við hlið Bjargey.
Fyrst var afi, svo Bjargey, svo kom ég, svo kærasti minn hann Erlingur og þar
við hlið var kærasti bróðir míns, Helgi. Anton bróðir var að bera kistuna, því
sat hann með hinum, hinu megin við gang á fremsta bekk. Það var svo sérstakt,
einbeitning mín var til staðar alla athöfnina, ég sat og hlustaði á hvert
einasta orð sem presturinn skaut frá munni sér með fullum áhuga. Ég viðurkenni
að ég var dálítið stolt af mér að geta það. Kistan var falleg amma, og lita
þeman falleg, hvít, fjólublá, bleik. Amma .. það er svo skrítið að vita til
þess að við munum ekki hittast meira hér í þessu lífi, en ég ætla að leyfa mér
að trúa því að við munum hittast á ný þegar minn tími kemur seinna. Amma..það
er svo fallegt minningar borð inní stofu heima hjá þér, gull fallegt og
heillandi. Það var svoldið skrítið að vera heima hjá þér, allir þessir gestir
en hvergi var að sjá þig. Að borða við eldhúsborðið, að spjalla við eldhúsborðið,
horfa þar sem þú varst vön að sitja, en þú komst aldrei við borðið eins og þú
varst alltaf til að spjalla. Amma, ég vil trúa að þér líði vel þar sem þú ert
núna og það sé hugsað vel um þig. Ég sakna þín.
Hver
minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, sem fengu að kynnast þér.
Sofðu nú rótt í guðs hlýju, Svífðu með englum yfir fjöll og dal, þar til við hittumst að nýju, í himnanna sal.
Faðir vor, þú, sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð. Og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen.

»
25.04.2011 20:12:32 / jóhanna elín
Það eru engir erfiðleikar sem kærleikur getur ekki sigrað, enginn sjúkdómur sem kærleikur getur ekki læknað, engar dyr sem kærleikur getur ekki opnað, ekkert djúp sem kærleikur getur ekki brúað, enginn veggur sem kærleikur getur ekki rifið niður, engin synd sem kærleikur getur ekki endurleyst. . . Það skiptir engu máli hve neyðin á sér djúpar rætur, hve vonlausar horfurnar eru, hve óreiðan er flókin, hve mistökin eru mikil. Ef kærleikurinn er nógu mikill leysir hann allt þetta. Ef þú ættir bata nógu mikinn kærleik yrði þú hamingjusamasta og voldugasta vera í heimi. . . Emmet Fox, Ræðan á fjallinu
»
23.04.2011 16:21:52 / jóhanna elín
Tileinkað ömmu minni Erlu Helgadóttur ♥

»
05.03.2011 21:19:01 / jóhanna elín
1st bíllinn okkar Erlings ♥ Jóhönnu
Sparkinn er í flokki minni bíla en er þó svo rúmgóður að það fer vel um
fimm fullorðna. Þú og vinirnir eigið sannarlega eftir að nýta ykkur
rúmgott farangursrýmið þegar verslunarferðirnar eða ferðalögin eru
annars vegar.
Skynsamlegur og skemmtilegur smábíll.Góðar hugmyndir skapa
góðan bíl. Ef þú spyrð bílahönnuð, þá jafnast ekkert á við að fá
tækifæri til að hanna bíl alveg frá grunni. Þannig lögðu
framleiðendur Spark upp verkefnið. Hönnuðir Spark fengu fyrirmæli um að
endurmeta viðtekin gildi og væntingar og nálgast hlutina frá alveg nýju
sjónarhorni. Þeir létu ekki segja sér það tvisvar, gáfu
sköpunargleðinni lausan tauminn og útkoman er skynsamlegasti og
skemmtilegasti smábíll seinni tíma; Chevrolet Spark.
- Rafmagn í framrúðum
- Hiti í afturrúðu
- Glasa- og flöskuhaldari milli framsæta
- Flöskuhaldari í framhurð
- Samlitir stuðarar
- 4 hátalarar
- Útvarp, CD, Ipod og USB tengi
- Margspegla póluð aðalljós
- Aftursæti fellanleg 60/40
- Samlæsing
- Stillanlegir hliðarspeglar
- Veltistýri
- Bólstrað hólf fyrir smámynt milli framsæta
- Taumottur
- Kortahaldari
- Þjófavörn
- ABS hemlar
- Diskabremsur að framan
- 5 hnakkapúðar
- 6 loftpúðar (gardínur)
- Dagljósabúnaður
- Hæðastilling á öryggisbeltum
- Bílabelti með sjálfvirkum strekkjara við högg
- Bremsuljós í afturglugga
- Styrktarbitar í hurðum
- Barnalæsing í afturhurðum
- ISOFIX öryggisfestingar
- 3 punkta öryggisbelti fyrir 5
- Hæðastilling á fra
»
03.03.2011 22:10:59 / jóhanna elín
Iðraólga einkennist af sársaukafullum samdráttum í meltingarvegi og er
eitt algengasta heilbrigðisvandamál sem læknar eigast við. Talið hefur
verið að um 20% einstaklinga þjáist af þessum kvilla en íslensk
rannsókn hefur sýnt að hann sé mun algengari á Íslandi. Þessi rannsókn
sýndi fram á að yfir 30% Íslendinga telja sig þjást af iðraólgu, 25,3 %
karla og 35,8% kvenna.
Þetta ástand er algengast hjá fólki á milli 25 og 45 ára aldurs og er mun algengara meðal kvenna.
Hjá fólki með iðraólgu verður eðlilegur, taktfastur vöðvasamdráttur í
meltingarvegi, óreglulegur og ósamhæfður. Þetta truflar eðlilegan
flutning fæðu og úrgangs í gegnum kerfið og leiðir til uppsöfnunar á
slími og eiturefnum í þörmunum. Þetta stoppar eðlilega losun á hægðum
og gasmyndun sem leiðir til uppþembu og hægðatregðu.
Iðraólga getur verið hvar sem er í meltingarveginum, allt frá vélindanu
niður í endaþarm. Það eru engin merki um að sjúkdómurinn valdi
vefjaskemmdum og veldur hann því einungis starfslegum truflunum.
Orakir iðraólgu eru óþekktar. Ein kenningin um orsakir hennar gengur út
á að truflun sé í starfsemi hormóna, sem orsakar óeðlilega samdrætti í
sléttu vöðvunum. Konur eru oft verri af einkennum iðraólgu nálægt
blæðingum og rennir það stoðum undir þessa kenningu. Sumir vísindamenn
telja að einhver vírus eða baktería geti verið hluti af orsökinni.
Sennilega eru þó algengustu orsakir iðraólgu, lífsstílsþættir eins og
streita og mataræði, sem og fæðuóþol ýmis konar. Annað sem getur spilað
inn í er ofnotkun á sýklalyfjum og öðrum lyfjum sem raska jafnvægi í
bakteríuflóru þarmanna.
Margir tengja streitu við aukin óþægindi. Einkennin eru oft verst
stuttu eftir máltíðir. Ósjálfráða taugakerfið stjórnar að hluta til
hreyfingum meltingarfæranna og getur streita þannig haft veruleg áhrif
á alla starfsemi maga, þarma og ristils.
Einkenni iðraólgu geta falist í kviðverkjum, lystarstoli, uppþembu,
harðlífi og/eða niðurgangi (oft á víxl), vindgangi, fæðuóþoli, slími í
hægðum og ógleði. Oft fylgja slæmir höfuðverkir og jafnvel uppköst.
Verkir versna oft eða fara í gang eftir máltíðir og stundum er hægt að draga úr óþægindum með hægðalosun.
Skortur á næringarefnum getur verið afleiðing iðraólgu þar sem upptaka
þeirra getur verið ónæg. Þar af leiðandi þarf oft fólk með iðraólgu
allt að 30% meira prótein en eðlilegt telst. Einnig þarf að gæta að
auka inntöku stein- og snefilefna.
Allt að 25% fólks með iðraólgu þjáist af liðagigt í ökklum, hnjám og úlnliðum. Einnig finnur mikill fjöldi fyrir bakverkjum.
Sumir sem þjást af iðraólgu eru með óeðlilegt hlutfall lifrarensíma í blóðinu og þarf því að hafa í huga að styrkja lifrina.
Margir aðrir sjúkdómar geta tengst iðraólgu, eins og gersveppaóþol,
ristilkrabbamein, sykursýki og sjúkdómar í gallblöðru og brisi svo
einhverjir séu nefndir.
Þegar iðraólga er sjúkdómsgreind er mikilvægt að útiloka aðra sjúkdóma
sem geta orsakað svipuð einkenni. Má þar nefna glútenóþol,
ristilkrabbamein, Crohns sjúkdóminn, niðurgang sem orsakast af sýkingu,
mjólkuróþol, auk fleiri sjúkdóma.
Iðraólgu geta fylgt mikil óþægindi en fólk getur lifað góðu lífi með
henni ef það breytir mataræði sínu, fær nægjanlega hreyfingu og bætir
sér upp nauðsynleg næringarefni.
Fólk með iðraólgu ætti að neyta fæðu sem er rík af trefjum og hægt er
að auka við inntökuna á þeim með bætiefnum. Trefjaríkt fæði er einkum
grænmeti, ávextir, heilkorn og baunir. Einnig er gott að taka inn
hörfræ daglega. Til að nýta þau sem skildi er nauðsynlegt að mala þau.
Hægt er svo að dreifa þeim yfir morgungrautinn eða múslíið á morgnana.
Forðist allar matvörur sem auka á slímmyndun í meltingarvegi og hamlar
þannig upptöku nauðsynlegra næringarefna. Þessar matvörur eru helstar
allur sykur, hvítt mjöl, dýrafita, allir drykkir með gosi í, koffein,
mjólkurvörur, sætuefni, sítrusávextir og öll unnin matvara.
Látið athuga hvort möguleiki sé á fæðuóþoli eða ofnæmi.
Drekkið nóg af hreinu vatni – 8 glös á dag en drekkið þó lítið með máltíðum.
Notið mikinn hvítlauk þar sem hann er hjálplegur við meltingu og losar okkur við eiturefni í ristli.
Gætið ykkar á að fá nóg af nauðsynlegum fitusýrum. Gott er að taka aukalega inn sem bætiefni.
Önnur góð bætiefni eru: L-Glutamín, B vítamín, Fjölvítamín og
Acidophilus. Einnig er gott að taka inn kalk og magnesíum. Einnig ætti
að taka inn Mjólkurþistil, til að styðja við lifrarstarfsemina.
Dragið úr streituvaldandi þáttum í lífi ykkar og stundið reglulega
hreyfingu, s.s. 30 mínútna göngu að lágmarki þrisvar sinnum í viku,
helst daglega.
»
21.02.2011 20:46:55 / jóhanna elín
இܓ I will never be your first kiss. I will never be your first love. I'm not your first valentine, first fight, first teddy bear, or first date. I'm not in this to be your first anything ......i just want to be your last. Mig kítlaði í fingurnar, mig langaði svo innilega að prufa að krota fáein orð á þessa góðu síðu mína. Hér er himnasæla að frétta. Þessa daga erum við Erlingur ( kærasti minn ) einkar spennt að fá bílinn okkar í hendur. Við ákv. að kaupa okkur nýjan Chevrolet spark, kóngablár að lit. Ég vonaði innilega að bíllinn væri til í bláum, og vitið það var til einn blár í tollinum sem við fáum n.k föstudag eða fljótlega eftir komandi helgina. Í dag er mjög stutt í þar til við förum til New York. Ferðinni mun flýta um mánuð. Mikil tilhlökkun ríkir á heimili okkar fyrir ferðinni. Ekki eigum við mikinn tíma fyrir okkur tvö þar sem við vinnum bæði frekar mikið og hittumst sára lítið, því verður gott að njóta samveru ásamt Antoni bróður og Helga ( kærasta hans ). Munum við verða samferða heim til Íslands, öll 4. Ég er búin að kaupa myndavél, ekki má hana vanta. Vegabréf er komið inn um dyr og visa kort í hönd, næst er að panta flugið okkar. Mig hlakkar til. Erlingur kom með þær skemmtilegar fréttir um að okkur væri í boði frítt flug, fram og tilbaka ásamt hóteli í næsta mánuðu, mars mánuði. Það hljómar mjög spennandi að fara úr umhverfi okkar og gera eitthvað fyrir okkur, enda eigum við það meira en sannarlega skilið. Svo er það haustið 2011, ég á örlítið erfitt með að bíða, hef dreymt í tvö ár að komast í Háskóla á ný, og nú mun ég ná því markmiði, það er að segja ef ég fæ aðgöngu að náminu. Mig hlakkar mjög mikið til þess að setjast á skólabekk með skólabækur, það gæti varla verið betra. Það má segja að það sé mikið að þakka ástinni minni, fyrir smá spark í rass og fyrir að bjóðast til að aðstoða mig. Ég mun ekki tala námslán, það léttir mér.
Ástin mín á afmæli í þessari viku, 32 ára. Það er svo sannarlega nóg um að vera þetta árið en ósköp líður það yfirburðs hratt. Enda nóg að gera í þjálfaramálum hjá mér bæði og vinnu. Eigið góða viku framundan, ekki veit ég hvenær ég skelli in kroti aftur, það er aldrei að vita.
»
24.08.2010 23:28:31 / jóhanna elín
 A STRONG WOMAN A strong woman works out every day to keep her body in shape — But a woman of strength looks deep inside to keep her soul in shape. A strong woman isn't afraid of anything — But a woman of strength shows courage in the midst of her fear. A strong woman won't let anyone get the best of her — But a woman of strength gives the best of herself to everyone. A strong woman makes mistakes and avoids the same in the future — But a woman of strength realizes life's mistakes can also be blessings and capitalizes on them. A strong woman walks sure footedly — But a woman of strength knows when to ask for help. A strong woman wears the look of confidence on her face — But a woman of strength wears an aura of grace. A strong woman has faith that she is strong enough for the journey — But a woman of strength has faith that it is in the journey that she will become strong. ~Author Unknown 
»
23.08.2010 22:08:24 / jóhanna elín
Take time to work, It is the price of sucess. Take time to think, It is the source of power. Take time to play, It is the secret of perpetual youth. Take time to read, It is the foundation of wisdom. Take time to be friendly, It is the road to Happiness. Take time to love and be loved, It is the privilege of God. Take time to share, Life is too short to be selfish. Take time to laugh, Laughter is the music of the soul. 
»
09.08.2010 03:42:46 / jóhanna elín
Before you complain about how bad things are, take a few moments to make them better. Before you consider the day to be wasted, spend some time and effort to bring it real value. Before you allow frustration to consume you, step
back and put things in perspective. Then take a deep breath and choose
to move forward with a peaceful, more effective approach. Before you begin to fret about your own troubles, give your help to another. When you give of yourself, you'll discover resources and abilities you never before knew you had. Before you give yourself over to anger, take time to listen and to understand. Before you lash out and tear down, look instead for ways to build bridges and create value. Before you sink into the depths of self pity, see if you can find something to laugh about. When you avoid taking yourself too seriously, many more opportunities can open up to you. Before you say or do something you know you'll regret, remind yourself of your highest purpose and vision. Before you take the next step, look where you're going, and choose the path that you know is best.
»
30.07.2010 05:11:43 / jóhanna elín
My mind, body and spirit is strong.
I take time each day to rejuvenate and recharge.
I draw from a deep well of peace and calm.
I breathe in strength and release all fears.
I go after my heart’s deep desires.
I focus on my goal and make it happen.
Each day I am getting stronger and wiser.
I trust my intuition and live life to the fullest.
»
23.06.2010 21:23:44 / jóhanna elín
»
19.06.2010 14:51:55 / jóhanna elín
Skipulag fjármálaAllir þeir peningar sem þú aflar þér eru greiðsla fyrir verkkunnáttu þína, hæfileika, getu og dugnað. Þú vinnur skipulega, mætir á réttum tíma í vinnuna, skilar þeim vinnutíma sem þú hefur selt vinnuveitandanum en þegar kemur að því að eyða þeim tekjum sem þú hefur aflað fer allt skipulag út böndum. Kannast þú við þessa lýsingu? Þegar þú hefur gert þér grein fyrir eyðslumynstri þínu skaltu taka ákvörðun um að taka fulla ábyrgð á eigin peningamálum. Því fylgir ákveðin vinna en þegar upp er staðið verður sú vinna örugglega minni en endalausar áhyggjur af skuldum og eftirköst óskipulagðrar eyðslu hafa í för með sér. - Komdu reglu á fjármál þín. Til að koma reglu á þín fjármál þarftu að skoða alla þætti þeirra. Ég þekki auðvitað ekki hvernig þín fjárhagsstaða er en flest þurfum við að takast á við eftirfarandi þætti.
- Gerðu úttekt á skuldum þínum og skipuleggðu hvernig þú ætlar að greiða þær upp. Leitaðu aðstoðar við þá skipulagningu, til dæmis í bankanum þínum.
- Settu þér það að markmiði að greiða allar afborganir af einum hlut áður en þú ferð að kaupa annan.
- Gerðu lista yfir alla fasta liði sem þú þarft að greiða mánaðarlega til að sjá hvar þú getur dregið út eyðslu svo þú eigir möguleika á að nota peningana í eitthvað annað. Þú veist ekki hvar þú getur sparað nema þú hafir heildarmynd af fjármálum þínum.
- Gerðu líka lista yfir það sem þú þarft að greiða nokkrum sinnum á ári og jafnaðu þann kostnað niður á hvern mánuð ársins fyrir sig. Þú þarft að eiga fyrir þessum greiðslum og til að þær komi þér ekki árlega á óvart getur verið þægilegt að fara í greiðsluþjónustu bankanna. Þar er þér hjálpað að skipuleggja greiðslubyrði ársins og þú greiðir jafnar greiðslur inn á reikning allt árið. Bankarnir sjá svo um að greiða reikninganna.
- Nýtir þú þér greiðslukortið þitt til að skuldfæra á það áskrift dagblaða, tryggingargreiðslur, sjónvarpsáskrift og ýmislegt annað þarftu að reikna út hversu hárri upphæð þessar greiðslur nema því þú ert í raun búin að eyða þeim hluta launanna fyrirfram. Peningar eru orka sem fólk notar í viðskiptum sín á milli. Þegar þú ákveður að stjórna þeirri orku sem þú hefur milli handanna verður nýting hennar mun skilvirkari. Breyttu hugsun þinni gagnvart peningum. Við það breytist svo margt í lífi þínu. Ekki hika.
2. Sýnu peningum þínum virðingu. Ef þú notar peningaseðla í almennum viðskiptum farðu þá vel með þá og hafðu þá á einum stað í seðlaveski, ekki vöðlaða saman hér og þar í töskunni þinni. Þeir eru fulltrúar fyrir hæfileika þína og kunnáttu svo þú þarft að sýna þeim virðingu. Hafðu líka debet- og kreditkortið þitt annaðhvort í sama seðlaveski og peningana eða í sérstöku kortaveski. Skildu ekki þessi kort erftir á glámbekk. Það er eins og að láta þúsundkalla liggja hér og þar. Taktu upp reglulegt heimilisbókhald eða notaðu bankayfirlitin til að hjálpa þér að sjá í hvað laununum er varið. Komdu líka reglu á vinnustaðinn og heimilið. Sé allt í óreiðu þar er það merki um óreiðu á fleiri stöðum. Settu þér dagleg, vikulega og mánaðarlega markmið í peningarmálum og fylgdu þeim eftir. Láttu hugann ekki reika. Haltu þig við það sem þú hefur ákveðið að gera. Sama hvað á dynur. 3. Sparaðu. Gerðu þér áætlun um sparnað. Saga segir af konu sem fékk alla fjölskylduna í lið með sér til að safna fyrir utanlandsferð. Börnin sættu sig meðal annars við hafragraut á morgnanna í heilan vetur í stað þess að fá Cheerios eða annað dýrara morgunkorn. Þau seldu allar gosdrykkjaflöskur og þeim peningum var safnað. Krakkarnir sýndu líka meiri hirðusemi og tóku jafnvel upp flöskur sem aðrir höfðu skilið eftir eða hent. Þær voru líka seldar og afraksturinn fór í söfnunina. Þessi sparnaður þeirra og ýmislegt fleira varð til þess að fimm manna fjölskylda gat eytt þremur vikur á Spáni í góðu yfirlæti. Ef þú ætlar að bíða með að spara þangað til þú átt nóha peninga gerir þú það aldrei. Þú getur hins vegar eignast næga peninga með því að byrja strax að spara. Sértu hins vegar í þeiri stöðu að telja þig ekki eiga neitt afgangs til að leggja fyrir eru samt nokkrar leiðir færar. Leggðu fyrir alla smápeninga sem eru í veskinu þínu í lok hvers dags. Safnaðu þeim saman á einn stað heima fyrir og farðu með þá í bankann mánaðarlega. Hættu að reykja og leggðu andvirði sígarettupakkans fyrir. Finndu leiðir: Láttu þér detta í hug eitthvert snjallræði sem gerir það að verkum að þú getur sparað peninga.
»
19.06.2010 13:10:37 / jóhanna elín
»
17.06.2010 01:01:33 / jóhanna elín
Kaupmaður sem er búinn að reka búðina sína í nokkur ár og það gekk mjög
vel á meðan á “góðærinu” stóð og búðin blómstraði hjá honum. Það var
eins og hendi hefði verið veifað og “kreppan” skall á og það
snarminnkaði salan og búðin fór að ganga illa. Kaupmaðurinn var svo
upptekinn af þeim sem ekki komu að versla hjá honum, hann veitti þeim
mesta athygli, hann veitti skortinum athygli, salan fór minnkandi og
minnkandi og kaupmaðurinn varð svartsýnn og neikvæður þangað til að
hann heyrði eina setningu sem gjörbreytti lífi hans og það var
setninginn “allt sem þú veitir athygli vex og dafnar.” Þannig að
kaupmaðurinn byrjað að þakka fyrir hvern einasta viðskiptavin sem
verslaði hjá honum. Hann veitti honum fulla athygli og sinnti honum
vel. Kaupmaðurinn tók eftir því strax á fyrsta degi að orka hans og
tíðni sem að hann sendi frá sér breyttist. Hann byrjaði að laða að sér
fleiri viðskiptavini með degi hverjum. Hann fann að útgeislun hans
hafði breyst og hann var jákvæður og það vildu alltaf fleiri og fleiri
versla við hann. Litla búðin hans á horninu hafði aldrei verið eins
vinsæl þó að það væri ennþá “kreppa”. Kaupmaðurinn hugsaði með
sér: “Vá, þetta er það besta sem hefur komið fyrir mig í langan tíma.
Ég var nefninlega búin að týna sjálfum mér, ég hafði enga ástríðu
lengur og ég var hættur að brosa. Ég var bara að upplifa græðgi. Núna
man ég hver tilgangur minn er og litlu verslunarinnar minnar. Núna er
ég þakklátur og hugsa bara um það eitt hvernig ég get þjónustað
viðskipavininn sem best og hvernig ég get breytt og haft áhrif á alla
mina tilveru. Ég er fullur af ástríðu og ég vakna á hverjum morgni
fullur tilhlökkunnar um að mæta í vinnuna og það sem meira er að allir
verkir úr líkama mínum eru horfnir. Mér líður alls staðar vel.
»
16.06.2010 23:41:41 / jóhanna elín
»
Síður: 1 2 3 ... 30
|
Heimsóknir
Í dag: 35 Alls: 131080
Jóhanna Elín
Jóhanna
Elín
Jelin@simnet.is
ÍAK Einkaþjálfari Maðurinn er skapaður til afreka, til að vegna vel og er gæddur fræjum mikilleikans.
Erlingur Guðmundsson இܓ
../(,")\♥ ♥(".) J ♥ E .../♥\. = ./█\. .._| |_ .. _| |_ ★
J ♥ E
Fyrir 486 dögum
♥ ♥ ♥ ♥ ♥ இܓ
Jóhanna Elín
Brosmild og lífsglöð stelpa.
Heilsufíkill sem hefur afspyrnu gaman af líkamsrækt,
heilbrigðum lífstíl, íþróttum og andleg málefni.
Starfa sem einkaþjálfari og leiðbeinandi
|